Frábært að sjá 22 ára stelpu vinna kokkakeppnina á Food & Fun og skjóta frægum kokkum ref fyrir rass. Þessi stelpa á örugglega eftir að láta til sín taka í framtíðinni og miðað við það sem ég sá til hennar í keppninni er hún vel að titlinum komin. (Nei, ég fékk því miður ekki að smakka á neinu af því sem hún gerði.)
Ég var á keppninni í allan dag og skemmti mér bara vel. Gaman að fylgjast með fagmönnum að störfum og sjá ýmislegt nýtt.
Ég hef áður sagt að ef ég geri eitthvað tvö ár í röð sé það þar með orðið að tradisjón. Þess vegna lýsi ég því yfir að það er orðið tradisjón hjá mér að fara á Bæjarins bestu og pulsa mig upp áður en ég fer á kokkakeppnina á F&F. Klikkar ekki.