Fór á Salt í gærkvöldi í smakk. Við fengum rækju- og lúðu-ceviche, saltfisk með spínati og kryddjurtum, lambafillet með chimichurri-sósu og ís með dulce de leche á eftir. Þetta var allt gott, lambið alveg sérstaklega gott og fyrsti rétturinn líka. Það eina sem mér fannst ekki alveg í lagi var að kryddjurtirnar yfirgnæfðu saltfiskinn dálítið - of mikið dill - en það var allt í lagi því þetta var bara vöndur ofan á saltfiskbitanum og ekkert mál að sópa honum af. Við vorum mjög sáttar.
Við gátum ekki setið lengi yfir réttunum þar sem það var verið að skjóta okkur þarna inn á milli og ekki gátum við látið fólk bíða eftir borðinu - en það gerði ekkert til því að barinn á Salti er býsna notalegur. Þar hittum við Gauja og Völu í GV, sem voru að koma af Apótekinu, og sátum með þeim það sem eftir var kvölds. Enduðum svo á Vínbarnum (þar sem við byrjuðum reyndar líka) en ég entist reyndar ekki lengi, var komin heim fyrir eitt.
Ég hef ekki borðað á Salti áður en er ákveðin í að fara þangað aftur fljótlega, leist vel á mig þar.