Gallinn við lífið þessa dagana er að það er allt of margt að gerast ... allt of margir staðir sem ég þarf að vera á/langar að vera á í einu. Þurfti í dag að rjúka úr miðjum mjög áhugaverðum Food & Fun-hádegisverði í Hótel- og matvælaskólanum vestur á Hótel Sögu til að halda erindi, missti fyrir vikið af öðru erindi sem ég hefði viljað heyra ...
Svo er það eitthvert matarrölt í kvöld, aldrei að vita hvar það endar, matreiðslukeppnin á morgun, matarboð annað kvöld, bollukaffi á sunnudaginn. Food & fun útum allt semsagt. Kannski bara eins gott að Gestgjafanum er ekki boðið á galadinnerinn á Nordica á laugardagskvöldið.