(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=f!=void 0?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(f==void 0)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=e>0?new b(e):new b;window.jstiming={Timer:b,load:p};if(a){var c=a.navigationStart;c>0&&e>=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; c>0&&e>=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&c>0&&(d.tick("_tbnd",void 0,window.chrome.csi().startE),d.tick("tbnd_","_tbnd",c))),a==null&&window.gtbExternal&&(a=window.gtbExternal.pageT()),a==null&&window.external&&(a=window.external.pageT,d&&c>0&&(d.tick("_tbnd",void 0,window.external.startE),d.tick("tbnd_","_tbnd",c))),a&&(window.jstiming.pt=a)}catch(g){}})();window.tickAboveFold=function(b){var a=0;if(b.offsetParent){do a+=b.offsetTop;while(b=b.offsetParent)}b=a;b<=750&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

15.7.06

Bjartsýnismanneskjan

Ég keypti mér jakka áðan sem mig vantaði eiginlega alls ekki. Hann var bara svo mikið ég.

Ég er að fara í matarboð sem ég nenni eiginlega ekki í. Það verður samt örugglega gaman.

Ég er í tíu ára krísunni minni (nei, stendur ekki í tíu ár, heldur kemur á tíu ára fresti). Líður samt bara ágætlega með það.

Ég er í alvöru að velta því fyrir mér hvort þessar rigningar séu ekki að fara að hætta.

Alltaf jafnbjartsýn.

|

14.7.06

Hafnarheimsóknin


Barnabarnið vill að ég bloggi. Og ætli ég geri það þá ekki bara ...

Jújú, það var gaman í Kaupmannahöfn. Eiginlega mjög gaman, eins og sést á þessum ísútataða unga manni (myndin tekin í Tívolí skömmu fyrir miðnætti á laugardagskvöld). Hann skemmti sér frábærlega í sinni fyrstu Kaupmannahafnarferð. Ég held að systur hans hafi þótt nokkuð gaman líka. Eins og okkur öllum.

Veðrið var náttúrlega frábært. Of heitt ef eitthvað var - en samt ekki, nema þá á nóttunni. Við sváfum með eintóm sængurverin og vorum samt í svitabaði. Stöku rigningarskúrir en þó fáir. Þrumuveðrið sem alltaf var verið að spá kom ekki.

Íbúðin var mjög fín og staðurinn frábær, hún var við Nýhöfnina - bókstaflega, maður sá allar krárnar út um eldhúsgluggann - en samt var staðurinn ótrúlega rólegur. Sameiginlegur inngangur með sjoppu þannig að það var hægt að fara á náttbuxunum að kaupa blað - nú, eða bjór ef því var að skipta. Bakarí/ísbúð í sama húsi og pizzastaður við hliðina - við notfærðum okkur það reyndar ekki. En Nýhafnarkrárnar þeim mun meira. Íbúðin var líka ótrúlega vel búin, ekki síst af eldhúsdóti - ég hefði getað eldað næstum hvað sem var þarna. Einkasonurinn og skylmingastúlkan voru í annarri íbúð við St. Pedersstræde, sem ég held að þau hafi verið bara ánægð með líka.

Annars gerðum við þetta venjulega sem maður gerir í Kaupmannahöfn þegar maður er með börn - fórum í Tívolí og dýragarðinn (Sauðargæran sá ísbjörninn kúka, mjög merkilegt - hann sá líka alvöruúlfa en ég held að hann hafi orðið fyrir smávonbrigðum með þá), siglingu og fleira, röltum um, sátum á útiveitingahúsum, borðuðum ís og pylsur, versluðum smávegis (ég keypti samt bara 7 matreiðslubækur), skoðuðum gosbrunna (sérstakt áhugamál Sauðargærunnar), lágum í leti ...

Sauðargæran fékk prumpublöðruna sína, sem blæs sig upp sjálf og vakti ómælda kátínu. Hann fékk líka fiðrildaháf sem var svo hirtur af honum í vopnaleitinni á Kastrup þegar við fórum heim, honum til mikillar sorgar.

Meira seinna, þegar ég nenni að setja inn myndir.

Okkur langaði nákvæmlega ekkert að koma heim.

|