Tilviljun?
Og Vonnegut sálaður. Merkilegt eiginlega; ég sem var með frasann So it goes í kollinum í allan morgun.
Eða kannski ekki. Þetta er einn af mínum uppáhaldsfrösum og ég hef til dæmis nokkrum sinnum notað hann hér á blogginu.
En samt ...
Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu
Og Vonnegut sálaður. Merkilegt eiginlega; ég sem var með frasann So it goes í kollinum í allan morgun.
Fyrir eitthvað tveimur árum hlaut starfsmannafélagið hérna nafnið Fríða til heiðurs Fríðu Björnsdóttur, sem starfaði hjá Fróða um árabil og var lengi trúnaðarmaður. Fríða er reyndar einn þeirra íslensku blaðamanna sem á hvað lengstan starfsferil - hún var blaðamaður númer átta síðast þegar ég vissi og hefur sjálfsagt færst eitthvað ofar á listann síðan þá.
Mér líst ekki alveg á blikuna.
Við Margrét drottning eigum greinilega við sama vandamál að stríða. Nema hún er greinilega mun verr farin en ég, enda töluvert eldri. Og ég er bara fín í bakinu. Ennþá.