Niðurrifsstarfsemi
Það hefur heyrst að til standi að breyta húsnæðinu hér á Höfðabakkanum, brjóta niður veggi og svona. Jamm. Ég bíð spennt eftir að sjá hvaða veggir verða brotnir niður í kringum mig. Verður það norður- eða suðurveggurinn? Hvort ætli ég deili skrifstofu með Reyni Trausta eða Gumma Bald eftir veggjabrotið?