Undirheimasímar
Ekki fékk ég nú neinar svona hótanir hér um árið - ég var jú einu sinni með svona lánssíma sem greinilega hafði verið í höndum einhvers sem var vel kunnugur í undirheimunum. Fékk þó engin ógnandi SMS á meðan ég var með hann svo að líklega hefur næsti notandi á undan verið í skilum.
Annars hélt ég að allir handrukkarar landsins væru núna komnir í lífvarðabransann. Þar er víst engin kreppa þessa dagana, rífandi gangur skilst manni.