Forlögin kalla mig í fótspor Geira
Þetta eru forlög, held ég bara.
Ég sagði í gær eða fyrradag frá honum Hassani, sem var að bjóða mér alla þá lögfræðiþjónustu sem ég mögulega gæti þurft í Dubai og Furstadæmunum.
Og í dag fæ ég póst frá indverskri ferðaskrifstofu um ,,cheap Dubai flights". Og þegar ég var að flakka milli stöðva á sjónvarpinu kom ég beint inn í auglýsingu um Dubai.
Það er eins og mér sé áskapað að fara til Dubai og koma mér þar í einhverjar lagalegar flækjur. Nú, eða bara einhvern bissniss.
Kannski ég bregði mér bara til Dubai. Gisti á sjö stjörnu hótelinu sem Geiri á Goldfinger gisti á þegar hann var þar á ferð.