Gott að eiga góða að
Hann Hassan var að senda mér tölvupóst þar sem hann bauð mér þjónustu lögfræðistofunnar sem hann starfar hjá í Dubai. Býður mér aðstoð við any legal problem in any place in all the Emirates.
Þetta er svo fallega boðið að það liggur við að mér þyki verra að eiga ekki í neinum viðskiptum við Sameinuðu arabísku furstadæmin. Vantar ekki einu sinni matreiðslubók þaðan, á eina og svo aðra frá Dubai sérstaklega, hlussustóra.
En það er aldeilis fínt að vita af Hassani og félögum ef á þyrfti að halda.