Ætli mér verði hleypt inn?
Bretar vilja ekki hleypa Mörtu Stewart inn í landið vegna afbrotaferils hennar. Bandaríkjamenn vilja ekki hleypa Boy George inn til sín af sömu ástæðu. Persónulega held ég reyndar að ég mundi frekar vilja Boy George í heimsókn.
En ég fór að velta fyrir mér hvort mér yrði kannski snúið við á Heathrow næst þegar ég fer til Englands. Ég sat einu sinni í heilan klukkutíma í fangaklefa lögreglustöðvarinnar á Króknum. Og svo hef ég mætt í yfirheyrslu með réttarstöðu sakbornings.
Ætli þeir vilji mig nokkuð frekar en Mörtu?