Ekki öruggasti vinnustaðurinn
Ekki að það sé neitt betra fyrir þá sem fyrir uppsögnunum verða að þessu sinni - en hversu oft ætli maður sé nú í áranna rás búinn að heyra fréttir um fjöldauppsagnir hjá Icelandair/Flugleiðum? Hundruðum manna sagt upp og mikill samdráttur? Ekki beint tryggasti vinnustaður á landinu, held ég. Og ekki veit ég hvað oft fyrirtækið hefur verið næstum farið á hausinn en alltaf bjargast. Þá var að vísu enginn Hannes að róta í peningakassanum eða einhverjir veruleikafirrtir menn að leika sér í Excel. Bara venjulegt gamaldags klúður.
En ég get ekki sagt að ég öfundi hann Bubba neitt af forstjórastarfinu.