Shady Lady lætur til sín taka
Shady Lady (pókerpersónan mín alltsvo, dregur nafn af stóru sólgleraugunum sem ég fel mig bakvið) rúllaði samstarfsmönnunum upp í pókerspili á sólpallinum áðan. Nú er þetta sko orðið alvöru, Bjarni reddaði ferðapókerkitti og við þurfum ekki lengur að spila með Hugleiksspilum upp á eldspýtur. Enda skilaði það sér fljótt. Til mín sko.
Held það sé alveg ljóst í hvað sólrík hádegishlé fara í sumar. Texas Hold'Em og ekkert annað.
Einkasonurinn segir samt að ég verði að fá mér speglasólgleraugu til að standa almennilega undir nafni. Ég held ekki; er alveg nógu shady og ladylike. Shady allavega.