Kínverjar í lange baner
Ég var eiginlega búin að fá nóg af Kínverjum fyrir lífstíð þegar ég var að gera nafnaskrána við Maó formann í fyrra. Eins og ég sagði þá, ég hef ekkert á móti Kínverjum, þeir eru bara svo helvíti margir og voru flestallir nefndir í bókinni, fannst mér.
Nema nú er ég komin á kaf í nýja kínverska nafnasúpu og í þessari bók eru allir nefndir sem ekki fengu að vera með í Maó-bókinni.
Svo ég vitni aftur í Noel Coward: Very big, China.