Úlfur, úlfur ...
... eða hvað? Einmitt.
Ég veit svosem ekki hvað er á myndinni sem Haddý og þær tóku á Skagaheiði. Kannski ísbjörn, hver veit? Gæti verið risarolla náttúrlega.
Í amerískum lögguþáttum (já, og dönskum líka, reyndar) er þetta ekkert vandamál. Þá er hægt að stækka myndina og skýra hana þangaðtil sést alveg hvað er á henni, sama hvað hún er vond í upphafi. Pís of keik.
Ég hef ekki lagt í vana minn hingað til að labba um Skagann svosem. En ef ég ætlaði þangað mundi ég koma við hjá refaskyttunni barnsföður mínum og fá lánaðan byssuhólk. Svona til öryggis.