Ekki meiri Volkan
Ekki gott með Tyrkina, nú fæ ég ekki að dást meira að Volkan Demirel. Æ æ.
Þar sem Volkan var ekki með í leiknum var ég auðvitað ekkert að horfa en það var þó kveikt á sjónvarpinu. Þegar seinni hálfleikur var nýlega byrjaður fór ég í sturtu. Var nú ekki lengi en þegar ég kom aftur sátu Þorsteinn J og þeir og voru eitthvað að spjalla. -Ha, er leikurinn búinn, hugsaði ég, -en ég var enga stund í sturtunni, var það? Í alvöru hvarflaði að mér að ég væri orðin svo slæm af kæfisvefninum að ég væri farin að steinsofna standandi í sturtu. En skýringin var víst önnur.