Hverjar eru líkurnar ... ?
Það gerðist merkur viðburður hér á Grettisgötunni rétt í þessu.
Ég var nýbúin að smyrja mér brauðsneið. Missti hana í gólfið og hún lenti ekki á smjörhliðinni!
Þetta málefni var reyndar rætt í þaula hérna um árið; þá kom nefnilega fyrir að kommentakerfið á þessu bloggi var vettvangur fjörugra og afar fróðlegra skoðanaskipta. Sem er ekki lengur þótt ég kunni litlar skýringar á því.