(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

20.4.08

Papparassinn Nanna


Ég svosem þekki ekki manninn og kannski var Múhammeð leiðsögumaður bara að ljúga - en hann fullyrti allavega að gráhærði gaukurinn í miðjunni væri Ramon Calderon, forseti Real Madrid. Sem er eitthvert fótboltalið eins og einn ferðafélaginn orðaði það.

Allavega var allt fullt af ljósmyndurum og sjónvarpsfólki að mynda manninn í bak og fyrir þarna við grafhýsi Múhammeðs 5. í Rabat svo að þetta var ábyggilega einhver mektargaur. Ég ákvað að smella mynd af honum eins og hinir papparassarnir í trausti þess að Múhammeð hefði borið réttilega kennsl á manninn. Veit ekkert hverjir hinir eru, sennilega mektarmenn í marokkóskum fótbolta eða einhverjir undirsátar hjá Real Madrid.

En barnabörnin eru nú meira fyrir Börsunga.

|