Hjúskaparsaga
Ég giftist einu sinni sjómanni. Allt í lagi með það.
Svo kom hann í land, gerðist starfsmaður unglingaheimilis og fór að teipa óþekka krakka niður í rúm. Allt í lagi með það, þannig séð.
Svo gerðist hann trukkabílstjóri. Þá skildi ég við hann.