Forfrömun og öryggi
Ég sá það á dögunum að það er búið að setja minn gamla vinnufélaga Guðjón Reynisson yfir Hamley's-búðirnar. Hann var sölustjóri hjá Iðunni hér áður fyrr, fór svo til Vodafone en hefur stýrt 10-11 síðustu árin.
Ég náttúrlega óska honum til hamingju með það (og vona að hann hafi fengið góðan ritara) en vona um leið að öryggi öryggisvarðanna í Hamley's verði tryggara en það hefur verið í 10-11.