Ekki nógu mikil súkkulaðikerling
Ég var að hugsa um að sækja um að taka þátt í þessari rannsókn. En svo sé ég að ég uppfylli víst ekki skilyrðin. Ég er ekki með sykursýki (ekki enn), er ekki komin á breytingaskeiðið (ekki enn) og tek ekki kólesteróllækkandi lyf (ekki enn). Þannig að það dettur víst uppfyrir. Ég er ekki nógu mikil kerling fyrir súkkulaðiátstilraunirnar. Ekki enn ...