Menningarnæturkjötsúpa
Ég efast um að ég standi í nokkrum vöfflubakstri á morgun (enda flutt af vöfflusvæði Skólavörðuholtsins) en mín næstumþvíárlega menningarnæturkjötsúpa verður væntanlega á boðstólum á Grettisgötunni frá því um eða uppúr sex og fram til hálfátta eða svo - klukkan átta er ég nefnilega að hugsa um að fara í í skrúðgöngu niður Laugaveginn með dixielandbandinu Öndinni.
Eða á meðan birgðir endast, skulum við segja. Ég á ekki pott nema fyrir svona tíu lítra. Jæja, kannski fimmtán. Allir velkomnir en fyrstir koma, fyrstir fá. (Og ef súpan klárast get ég svosem alveg dregið fram vöfflujárnið.)