Geitanýru
Ég er nýbúin að fá matreiðslubók frá Sómalíu og nú veit ég allt um hvernig á að elda geitanýru. Nema uppskriftin hefst á orðunum ,,You might not find goat kidney at your local grocery store."
Ekki í 11-11 eða Bónus, allavega. Á hvorugum staðnum var til kjötfars á dögunum, þegar ég eldaði kálböggla handa Boltastelpunni. Og búð sem á ekki til kjötfars er ólíkleg að eiga til geitanýru. Ég efast jafnvel um að Nóatún geti hlaupið undir bagga.Spurning með að tala við Jóhönnu á Háafelli, veit ekki hvort hún nýtir nýrun úr sínum geitum.
Sú uppskrift sem mér finnst samt merkilegust í bókinni er að réttinum Bun. Það eru djúpsteiktar kaffibaunir.