Ég, klámhundarnir og Tony Blair
Ég gaf einhverntíma mjög snemma yfirlýsingu um að hér yrði aldrei teljarablogg og hef næstumþvíalveg staðið við það. (Ef ég hefði áhuga á svoleiðis vitið þið náttúrlega hvar ég væri að blogga ...) Samt ætla ég nú að geta þess að gestur númer fimm hundruð þúsund kom víst við einhverntíma í dag.
Ég hef ekki hugmynd um hver það var og það eru að sjálfsögðu engin verðlaun. Enda ekkert að marka því að bæði hafa einhverjir dagar dottið út á teljaranum og svo rugluðu g-strengs-klámhundarnir talninguna á sínum tíma. Ég er reyndar enn að fá stöku heimsóknir út af mynd sem aldrei birtist á blogginu mínu og ég hef aldrei skilið af hverju tengist inn á það. Ég reyndi meira að segja að leita að henni áðan en nennti ekki að fletta nógu langt aftur á google, hún er allavega ekki lengur á fremstu síðunum. Ég fann samt mynd af Tony Blair á g-streng.