Niðurstöður
Niðurstöður úr könnuninni um hvort ég sé halló:
42,6% finnst allt í lagi bara á meðan ég líki mér ekki við Sigmar B. eða Nigellu.
20,6% hafa séð Waynes World 2.
18,4% vilja sýna mér góðlátlegt umburðarlyndi.
10,3% er hundsama. Ég merkti sjálf við þann möguleika (já, auðvitað tek ég þátt í mínum eigin könnunum. Þó það nú væri).
5,1% líta á mig sem mömmu sína.
2,9% finnst ég halló.
Þannig að ég held bara áfram að vera matargúrú.