Afmæli
Ég keypti myndavél í afmælisgjöf handa táningnum. Canon Powershot A430. Fín vél miðað við verð sýndist mér, held að hún hafi fallið alveg í kramið.
Lambalærið með brúnuðum kartöflum, Ora grænum, brúnni sósu og gulum dvergtómötum (svona til að hafa þetta ekki alveg hefðbundið) féll líka í kramið. Eða reyndar borðaði afmælisbarnið aðallega kartöflurnar en það kom engum sérstaklega á óvart.
Svo bendi ég á könnunina hér til hliðar, sem er annars sú fyrsta sem ég er með nokkru sinni. Ég er svo vön að umgangast fjölskyldu mína að það kemur alltaf jafnflatt upp á mig þegar fólk heldur að ég taki sjálfa mig alvarlega.