Nú er það bara elliheimilið
Afmælisveisla hjá Boltastelpunni. Ég bakaði ekkert og mitt eina framlag var hummus. Ég held að mínu hlutverki í lífinu sé lokið, ég er ekki einu sinni sett í að baka fyrir afmæli hjá barnabörnunum lengur.
Best að panta bara pláss á Grund strax. Og fara á námskeið í tælensku eða pólsku.
Annars vann ég einu sinni á Grund fyrir óralöngu. En það var að vísu í eldhúsinu. Mín eina reynsla af stóreldhúsum. Ég var aðallega í kartöfluskrælingadeildinni.