Ég er alveg óhugnanlega nálægt því að komast í jólaskap. Og sé fram á að verða í jólaskapi næsta mánuðinn. Sem er út af fyrir sig í lagi nema svo er það bara búið. Eftir miðjan nóvember verð ég komin með jólafóbíu, sekk ofan í skammdegisþunglyndi og melankólíu og fer að elda eitthvert fjandans hollmeti og megrunarfæði. Þorláksmessuboðið í stórhættu ...
Við erum löngu búin að komast að þeirri niðurstöðu að það hafi vantað alla jólastemmningu í jólablað Gestgjafans í fyrra þannig að nú á að bæta úr því. Og svo hafa verið að hrúgast að mér fleiri jólatengd verkefni sem þarf að vinna á næstu dögum og vikum. Þetta er ekki gott ástand.