Erfiður dagur í dag. Og stefnir ekkert í að verða auðveldari þótt ég sé komin heim.
Ég bjó til tvær skyrkökur og fimm rúllutertur fyrir myndatöku í vinnunni í dag. Nei, sex rúllutertur reyndar; ein fór í klessu. Á eftir að gera eitthvað í kvöld sem ég man ekki í svipinn hvað er. Jú, brauð, brauðterta og tiramisu.
Kosturinn við rúllutertur er náttúrlega að þær eru svo fljótbakaðar að það er ekki stórmál þótt maður klúðri einni og einni.