Ég fékk boðsbréf um frían miða á einhverja Exclusive Full Day Internet Marketing Workshop Training. Eða ég held að ég hafi átt að fá þetta en boðið er reyndar stílað á Nanna R. Gnvaldard"Ttir. Og utan á umslaginu stendur Frí námstefna á Hotel Nordica með mat. Aðgangsmiðar innifaldir! en á miða í umslaginu stendur að þetta sé á Grand Hótel.
Ég er hrædd um að ég mundi reyna að vanda mig betur við mitt Internet Marketing ef ég væri í svoleiðis.
En Gnvaldard"Tir er flott nafn. Hljómar eins og heiti á tröllaprinsessu úr einhverri fantasíubók.