Ég sagði Kristni tölvumeistara Fróða í dag að ég yrði að fá fartölvu pronto. Ég væri nefnilega að fá Ísland í dag í heimsókn og ef ég ætlaði að sýna þeim vefinn og svona yrði ég að geta gert það í eldhúsinu, ég ætlaði sko ekki að fara að draga Þorstein J inn í svefnherbergi - eða sko, ég er ekkert sérlega andsnúin því að teyma myndarlega karlmenn inn í svefnherbergi, þannig séð, en ekki samt í beinni.
Ég fékk tölvuna.