Ókei, kannski eðlileg niðurstaða ...
YOU EAT PEOPLE!!!
what's YOUR deepest secret?
brought to you by Quizilla
Annars hef ég mestar áhyggjur af því þessa stundina að ég lagði það á mig að fara í þrjár búðir til að leita uppi kjötfars í kálbögglana. Það var ekki til í fyrstu tveimur búðunum sem ég fór í og í þeirri þriðju var til ég segi og skrifa einn skammtur af farsi. Er kjötfarshallæri í landinu eða ákvað hálf Reykjavík samtímis að hafa kjötfars í kvöldmatinn?
Sauðargærunni virðist hafa orðið gott af kálbögglunum, hann allavega steinsofnaði fljótt og liggur nú og hrýtur hærra en nítján mánaða barn á að geta gert. En hann er nú líka af mikilli hrotuætt.