Hvað eiga kjúklingabringur, gráðaostur, rifin salatblöð og Doritos sameiginlegt?
Tjaa ...
Þetta er ráðgáta kvöldsins fyrir Nönnu.
Brúðarterturnar blikna alveg við hliðina á þessu.
Líklega þarf ég í klukkutíma bað og drekka þrjú hvítvínsglös. Minnst.
Nema ég má ekki vera að því af því að ég þarf að vakna eldsnemma til að baka brauð og mæta svo galvösk í sjónvarpsútsendingu. Og svo beint í stúdíóið í áframhaldandi brúðartertur.
Það er ekkert alltaf gaman að vera ég, þrátt fyrir allt nammið. Sem hefur þó enn bæst við síðan síðast. Núna er ég komin með gommu af páskaeggjum.