Úlfur í minkagæru
Ókei: Áramótin voru ágæt, skaupið fínt að mestu, ég nennti ekki að hlusta á Geir en geng útfrá að hann hafi ekki sagt neitt markvert.
Þá er það frá.
Kornhænurnar sem ég ætla að elda í kvöld bíða í ísskápnum, ég puntaði mig í gærkvöld með minkaslánni sem ég keypti fyrir slikk á Ebay - engin kreppa hér, neinei.
Á myndinni má sjá dótturson minn skarta kreppuminkinum.
Já, og gleðilegt nýár og allt það.