Tónlistarval Reynis
Einhvers staðar, gott ef ekki í Orðinu á götunni, var ég titluð Aðdáandi Reynis Traustasonar númer eitt. Fyrir því var nú ekki sérstök innistæða þótt ég nefndi Reyni, pirrandi gemsahringingarnar og tónlistarsmekkinn af og til hér á þessum vettvangi á þeim tíma sem við höfðum skrifstofu hlið við hlið.
Spurning kannski hvort Reynir ætti að hætta að spila Born to be Wild og taka aftur til við The Final Countdown.