Samvinna og Sullenberger
Alveg væri ég til með að taka upp öfluga samvinnustefnu aftur. Bara ef Framsókn fylgir ekki með í pakkanum. Enda alin upp á kaupfélagsvarningi, báðir afar mínir í kaupfélagsstjórninni - líka sá þeirra sem var Sjálfstæðismaður - vann á sumrin hjá kaupfélaginu, menntuð í nábýli við KEA og bara með einhver innbyggð kaupfélagsgen.
Frekar það en lágvöruverslun Jóns Geralds, held ég.