Aðdáandinn
Sko, Reynir er ágætur nágranni, nema hvað það fer í taugarnar á mér að hann er núna með sömu hringingu á gemsanum sínum og ég svo að ég er stöðugt að leita að mínum, bara til að uppgötva að það er alls ekki verið að hringja í mig. Enda hringir enginn í mig nema einkasonurinn þegar hann er blankur (sem er sjaldan nú orðið) og svo fólk sem vantar leiðbeiningar um matargerð.
En hvort ég á þennan titil skilið er annað mál ...