Bankamiðuð hugsun - böl samtímans
Maður er orðinn svo gegnsýrður af þessu djöfuls bankatali að þegar ég ætlaði að nefna Merrild-kaffi áðan kallaði ég það óvart Merrild-Lynch.
Sjálf drekk ég aftur á móti Teogkaffi-kaffi frá brennslumeistaranum honum uppáhaldstengdasyni mínum. Engin hætta á að ég rugli því saman við einhverja fjármálastofnun eða honum saman við eitthvert bankastjórabeibífeisið.