Undir toskanskri sól
Jú, mig langar víst aftur til Toskana, það er ekki hægt að neita því.
Og það rann allt í einu upp fyrir mér að þótt mín gömlu hné séu kannski ekki alveg að gera sig í tínslunni, þá mundu þau duga til að vinna í flokkuninni. Reyndar er vínberjatíminn að verða búinn en það styttist í ólífurnar.
Það má láta sig dreyma. Og næra sig á minningum um fallega daga í Toskana.