Lífsleikniritstjórinn
Forleggjarinn er búinn að útnefna mig matar- og dónabókaritstjóra Forlagsins. Það starfsheiti er samt ekki komið á heimasíðuna. Enda er ég nú með ýmislegt fleira á minni könnu, matreiðslu- og kynlífsbókaútgáfan er ekki það viðamikil að ég geti ekki annað öðru svona í hjáverkum.
En þegar glöggt er að gáð er reyndar kynlífsbókaútgáfan mun líflegri en matreiðslubókaútgáfan hjá Forlaginu þetta árið. Ritstjórinn vill þó ekki alveg taka á sig ábyrgðin á þeirri þróun og hlutfallið gæti nú breyst strax á næsta ári. Án þess þó að dónabókunum fækki endilega ...