Hættulegt líf á landsbyggðinni
Ósýnilegur hvítabjörn skilur eftir sig spor á Hveravöllum, á Ísafirði leikur snúrunærbuxnaþjófur lausum hala, á Reykjanesi vellur Gunnuhver út um allt ... eins gott að ég ætlaði hvort eð er að halda mig í bænum um helgina. Þótt dóttursonurinn sé að spila fótbolta uppi á Akranesi. Hann er hugdjarfari en ég.