Hvítvínsmaríneraður sjávarréttakokkteill
Hér er uppskriftin sem ég var beðin um fyrr í dag. Þetta er eins og ég sagði réttur sem ég hef mjög oft gert en sennilega aldrei eins í tvö skipti. Upphaflega notaði ég mest hörpudisk en hann er svo fjandi dýr núorðið; annars er hægt að nota rækjur, krækling, humar - já, svo mætti líka nota bita af þéttum fiski eins og lúðu. Stundum nota ég skalottlauk (skorinn í geira), hvítlauk, basilíku, græn piparkorn, kapers og ýmislegt fleira. Asíurnar eru aftur á móti möst. Hins vegar er svosem hægt að sleppa hvítvíninu og nota dálítið meira af sítrónu- og límónusafa í staðinn og svo skvettu af vatni.
Hvítvínsmaríneraður sjávarréttakokkteill með asíum og paprikum
500 g rækjur
250 g hörpuskelfiskur
250 g skelfiskblanda (Snæfiskur)
250 ml hvítvín (eitthvað tilfallandi en helst ekki verulega sætt)
1 krukka asíur
2-3 paprikur, mismunandi litar, helst ekki grænar
2-3 vorlaukar
1 sítróna
1 límóna
50 ml ólífuolía
2 tsk rósapipar (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
Allt sjófangið (sem má gjarna vera hálffrosið eða jafnvel alveg) sett í stóra skál eða krukku. Hvítvíninu hellt yfir og síðan leginum af asíunum en þær sjálfar skornar í bita og síðan settar út í. Paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í litla bita og blandað saman við og vorlaukurinn einnig. Safinn úr sítrónunni kreistur út í og límónan skorin í þunna báta og blandað saman við. Olíunni hrært saman við og kryddað með pipar og salti eftir smekk (fara varlega í saltið samt). Látið standa í kæli í nokkra klukkutíma eða til næsta dags. Borið fram með góðu brauði.