Frálagsborð
Ég fann pokann með bolnum sem ég var eiginlega viss um að ég hefði hent, hann reyndist vera frammi í eldhúsi ofan á gaskútnum, sem er ekki alveg augljósasti staðurinn. Og þá rifjaðist upp fyrir mér að þegar ég kom úr búðinni hafði ég lagt hann frá mér á stóra kassann utan af grillinu sem er búinn að hálfteppa umferð um ganginn síðasta mánuðinn - og svo þurfti ég stuttu seinna að nota kassann fyrir frálagsborð fyrir aðra hluti og hafði þá borið pokann með mér fram í eldhús af því að ég átti leið þangað út af öðru ...
En í gær kom góðhjartaður maður og losaði mig við stóra grillkassann og fleira. Og það rann upp fyrir mér í morgun að ég hálfsaknaði hans. Merkilegt hvað maður getur vanist hlutum sem eru fyrir manni. Nú sé ég að mig vantar eiginlega frálagsborð akkúrat á þessum stað.
Bara ekki alveg í sömu stærð. Kannski meira eins og frálagshillu.