Til London í vetrarúlpunni
Hmm, líklega ekki ástæða til að draga fram léttu sumarjakkana fyrir ferðina til London sem við vinkonurnar erum að fara í á fimmtudaginn. Vorið lætur eitthvað standa á sér - reyndar hélt ég að veðrið væri verra miðað við myndirnar sem ég sá í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi en það var líklega norðar í Englandi. Það er nú samt spáð heldur hlýrra um helgina.
Ég ætla allavega að hafa vaðið fyrir neðan mig og leggja af stað í hlýrri yfirhöfn (enda varla ástæða til annars miðað við veðrið hér). Ég hef oftar en einu sinni misreiknað mig á veðrinu í London og verið að drepast úr kulda, sem endaði með því að ég keypti mér yfirhöfn sem mig vantaði nú ekki beinlínis - því að ef ég á of mikið af einhverju eru það yfirhafnir (nei, ekki matreiðslubækur!).
Og ég hef ekki hugsað mér að versla neitt að ráði í London í þetta skipti. Ekki bara vegna gengisins, heldur einfaldlega af því að mig vantar ekkert. Nema fáeinar matreiðslubækur náttúrlega. Og ef ég rekst á eitthvert áhugavert ættarsilfur á einhverjum markaði ... En ég á samt nú orðið flest slíkt sem mig hefur langað í. Meira að segja viktoríanskan silfurtannstöngul.