Spurt og stundum svarað
Ég horfi næstum aldrei á Gettu betur eða Útsvar eða aðrar spurningakeppnir í sjónvarpi. Ég veit ekki einu sinni hvort eru einhverjar slíkar í útvarpinu á þessum misserum. En ég reyni að missa alls ekki af spurningakeppni fjölmiðlanna um páskana. Ég man meira að segja að þegar við Boltastelpan vorum í London um páskana í hitteðfyrra, þá bölvaði ég því að geta ekki hlustað á spurningakeppnina. Það er bara partur af páskunum.
Ég rak reyndar áróður fyrir því á sínum tíma, þegar ég var blaðamaður, að Gestgjafinn sendi lið í keppnina, en það hlaut dræmar undirtektir. Ekki þar fyrir, ég mundi allavega klikka rækilega á öllum fugla- og blómaspurningum þrátt fyrir sveitauppruna minn. Þegar ég átti heima í sveitinni var ég nefnilega ekki búin að fá gleraugu og sá aldrei fugla og annan fénað sem verið var að benda mér á; venjulega laug maður upp á sig að sjá þetta til að vera ekki álitinn algjör heimskingi.
Svo er ég reyndar mikiðtil hætt að fylgjast með fréttum svo að ég mundi ekki standa mig vel í dægurmálaspurningum heldur. Að ekki sé talað um tónlist ...
En nú er keppni dagsins að byrja, best að leggja við hlustir.