Gleymnu mæðginin
Ég hringdi í einkasoninn rétt áðan og spurði hann hvort hann hefði ekki ætlað að koma í mat. Hann vaknaði upp við vondan draum og sagðist hafa verið búinn að gleyma því.
En það var allt í lagi því að ég hafði gleymt að elda.
Við ætlum samt ekkert að efna til meinlætalifnaðar og föstu í tilefni dagsins og ég var að henda kjúklingavængjum inn í ofninn.
Þetta er svoleiðis dagur. En ég er samt búin að koma heilmiklu þýðingarstarfi frá mér.