Ekki grænir fingur, heldur grænir fætur
Það mátti ekki á milli sjá hvort okkar Bergs systursonar míns var í grænni skóm í veislunni á laugardaginn.
Og ég var náttúrlega í græna kjólnum eins og gefur á að líta. Og grænum sokkum.
Ég hefði kannski átt að kalla einkasoninn til og fá glæsilegu þrílitu spariskóna hans (svartir, hvítir og hárauðir) með á myndina en það hefði reyndar spillt grænu stemmningunni.