Óvænt blómasending
Ég fékk blómasendingu frá myndarlegum ungum manni áðan. Páskaliljur.
Það gerist nú hreint ekki á hverjum degi að menn sendi mér blóm svona óforvarendis. Frekar að ég fái óvæntar vínflöskur - ætli það sé aldurinn eða orðspor mitt sem veldur því?
Reyndar var það hann Oddur systursonur minn sem sendi mér vöndinn - en mér þykir bara ennþá vænna um það.