Komin með nýja tölvu ...
... MacBook, alveg eins og þessa sem ég átti pantaða en fékk ekki.
Ég fékk skyndilegt hugboð, tók strætó í Kópavoginn (viljandi aldrei þessu vant), fór í Elko um leið og var opnað - tölvukerfið þeirra sagði að þær væru uppseldar en lipur afgreiðslumaður fann nú samt eina fyrir mig á lagernum, indælispiltur. Fyrir hana borgaði ég 97.995, við það bætist leigubíll úr Kópavogi því að ég nennti ekki heim með tölvuna í strætó, 1950 krónur. Nettógróði miðað við tölvuna sem ég fékk ekki heilar 45 krónur.
Þannig að nú get ég verið í góðu skapi á afmælisdaginn minn. Þökk sé Elko.