Litskrúðugt lambakjöt
Það má svosem alveg deila um hvort íslenskt lambakjöt sé það besta í heimi. Ég hef meira að segja fengið ljómandi gott enskt lambakjöt, sem ég veit að sumum þættu tíðindi - en það er til. En ég hef aldrei eldað sjálf úr öðru en íslensku lambakjöti. Og það er satt að segja eitt af mínum uppáhaldshráefnum.
Þetta hér var í matinn á föstudaginn og ég var að gæða mér á afgöngunum áðan.