Fatapeningar
Spurning hvort ég ætti ekki, að teknu tilliti til þess hvað ég er búin að koma oft fram í alls konar fjölmiðlum að undanförnu og hef næstum því lent í fatavandræðum af því tilefni, að fara fram á fatastyrk frá Forlaginu.
Fæ bara að vera í reikningi hjá Stórum stelpum eða eitthvað.
Ég mundi meira að segja gefa þetta upp til skatts, hversu lítið sem það væri.